Einar Hákonarson er fæddur í Reykjavík 1945. Hann er fyrrum skólastjóri Myndlista- og handíðaskóla Íslands, forstöðumaður Kjarvalstaða og eigandi Listaskálans í Hveragerði. Einar hefur verið einn ötulasti vörður íslenska málverksins þar sem hart hefur verið að því sótt úr ýmsum áttum hin síðari ár.
Einar kom ungur fram á sjónarsviðið. Eftir nám í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og svo Valand listaháskólanum í Gautaborg kom hann heim með myndlistarverðlaun Norðurlandaráðs og alþjóðleg grafíklistaverðlaun frá Júgóslavíu.
Einar hélt sína fyrstu einkasýningu í Bogasalnum 1967 og kom með manneskjuna aftur í íslenska málverkið þar sem abstrakt listin réð ríkjum. Síðan hefur Einar ávallt verið stefnufastur í listsköpun sinni, þar sem manneskjan er yfirleitt í fyrirrúmi í ýmiskonar expressionísku umhverfi þó losnað hafi um form og liti hin síðari ár.