Úr iðrum jarðar - skoðið sýninguna

Portraits of the Eruption - view online

Forsíða - Home
Listamenn - Artists
Uppboð - Auction
Sýningar
Hliðarsalur - Volcano Exhibition
Fréttir - News
Upplýsingar - Info
International visitors
Login


Skráðu þig í
Listaklúbbinn Fold






Einu sinni var Print Senda
Höfundur Jóhann   

GunnellaS Í Ð A S T A   S Ý N I N G A R H E L G I
Sýning Gunnellu  –   Guðrúnar Elínar Ólafsdóttur lýkur í Galleríi Fold við Rauðarárstíg sunnudaginn 29. nóvember. Sýninguna nefnir listamaðurinn „Einu sinni var“.

GUNNELLA ÁRITAR BÆKUR SÍNAR OG SPJALLAR VIÐ GESTI Í

GALLERÍI FOLD

LAUGARDAG OG SUNNUDAG FRÁ 14 TIL 16.

Gunnella stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1974-76 og 1983-86. Þá naut hún leiðsagnar Hrings Jóhannessonar og Ásgeirs Bjarnþórssonar.

Verk eftir hana var valið til þátttöku í myndlistarsamkeppni Winsor og Newton árið 2000 og í kjölfarið var haldin sýning á verkunum í London, Brussel, Stokkhólmi og í byggingu Sameinuðu þjóðanna í New York.

Árið 1997 fékk hún menningarverðlaun Garðabæjar. Dagblaðið The New York Times verðlaunaði Gunnellu 2005 fyrir bestu myndskreytingar í barnabókum í Bandaríkjunum. Verðlaunin fékk hún fyrir myndir sem Bruce McMillan skrifaði bókina Hænur eru hermikrákur útfrá. Gunnella hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga.

GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400