Úr iðrum jarðar - skoðið sýninguna

Portraits of the Eruption - view online

Forsíða - Home
Listamenn - Artists
Uppboð - Auction
Sýningar
Forsalur - Hjalti Parelius
Hliðarsalur - Volcano Exhibition
Fréttir - News
Upplýsingar - Info
International visitors
Login


Skráðu þig í
Listaklúbbinn Fold






Hátíð trjánna 2008 – list í þágu barna Print Senda
Höfundur Jóhann   

Hátíð trjánna 2008 – list í þágu barna

Hátíð trjánna – list í þágu barna, er samstarfsverkefni Barnaheilla og listamanna sem nú er haldið fjórða árið í röð. Ellefu þjóðþekktir listamenn tileinka Barnaheillum verk sín í ár. Þema verkanna er tré og af því dregur hátíðin nafn sitt, en listamennirnir sköpuðu verkin sérstaklega að þessu tilefni. Samstarf  Barnaheilla og listamanna er mikilvæg fjáröflunarleið fyrir samtökin og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag.

Gallerí Fold er  styrktaraðilum verkefnisins og því er hægt að skoða öll verkin hér á Myndlist.is

Gallerí Fold tekur enga þóknun vegna sölu þessara verka fyrir Barnaheill og hvetur alla til þess að styðja við þetta verðuga verkefni.

Upplýsingar um verkin er einnig að finna á vef Barnaheilla, www.barnaheill.is.
 
Allur ágóði af sölu verkanna rennur til verkefna Barnaheilla. Barnaheill eru frjáls félagasamtök sem eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children. Barnaheill vinna að mannréttindum barna á Íslandi og erlendis. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er leiðarljós samtakanna í öllu þeirra starfi. Samtökin vinna að bættum hag barna með því að hlusta á börn, vera málsvari þeirra, með fræðslustarfi og skilgreindum verkefnum. Helstu áherslur Barnaheilla hérlendis eru á almenna réttindabaráttu barna og vernd barna gegn ofbeldi. Framundan er stórt verkefni en Barnaheill stefna að því á fyrra hluta ársin 2009 að opna upplýsinga- og stuðningslínu fyrir börn og unglinga á aldrinum 7-18 ára. Sím- og netsvörun verður á íslensku og tungumálum fjölmennustu innflytjendahópanna. Baran- og unglingalínan gefur börnum aukið tækifæri til að tjá skoðanir sínar og líðan, sem mikil þörf er á um þessar mundir. Erlendis styðja Barnaheill á Íslandi við menntun barna í stríðshrjáðum héruðum Kambódíu og Norður – Úganda
 
Stjórn og starfsfólk Barnaheilla



Alistair Macintyre

Alistair Macintyre (f. 1958 í Bretlandi) er búsettur í Reykjavík og hlaut menntun sína í Bretlandi og Finnlandi. Hann vinnur einkum með stór pappírsmyndverk sem hafa sterka skírskotun til framrásar tímans. Alistair hefur tekið þátt í mörgum samsýningum ytra og haldið einkasýningar á Bretlandseyjum, meginlandi Evrópu og hérlendis þ.m.t. í Gallery Turpentine, Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum og Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni.
Verk Alistairs eru í eigu margra einkasafna, stofnana og listasafna í Evrópu og í Bandaríkjunum.

 

Titill: Growth and transmutation
Efni: Ís, járn og olía á pappír (300g Bockingford)
Stærð: 152 x 152 sm
Ár: 2008
Verð: 750.000 kr.

Um verkið segir Alistair:
Allur vöxtur nærist á tíma og tíminn er breyting. Í þessu verki eru notuð efni sem byrja sem eitt, en umbreytast í eitthvað annað; fast efni verður tóm, járn verður að ryði, þrívídd verður tvívídd. Yfirborð pappírsins er undirlagt af ferli þar sem lífrænn vöxtur myndast og þenst út. Afraksturinn verður eftir sem steinrunnið form – hinar varanlegu leifar umbreytingarinnar.
 


Brian Pilkington


Brian Pilkington (f. 1950) er frá Liverpool á Englandi en hefur búið á Íslandi frá 1977. Hann er löngu þjóðkunnur fyrir teikningar sínar og snjallar myndskreytingar og hefur skrifað og myndskreytt fjölmargar barnabækur, sem gefnar hafa verið út hér heima og erlendis. Bækur Brians um íslenska þjóðtrú og tröll hafa vakið verðskuldaða athygli innan lands og utan á síðari árum. Hann hefur hlotið margar viðurkenningar fyrir verk sín.

Titill: Skógarfriður
Efni:  Tré
Ár: 2008
Verð: 780.000 kr.
 
Um verkið segir Brian:
Þetta verk er eingöngu unnið úr „fundnum“ viði, sumt er smíðað tré en annað nota ég eins og ég fann það. Engin tré voru höggvin sérstaklega fyrir þetta verk. Þegar ég er að skissa úti við skrifa ég oft hjá mér hluti sem ómögulegt er að mála, eins og hljóð, hitastig, vindátt o.s.frv. Þetta er hugmyndin að baki hinnar samfelldu setningar utan á verkinu. Maður þarf að ganga í kringum skóginn til að lesa hana og hugmyndin um ferðina höfðaði til mín. Verkið er unnið með blandaðri tækni og varið með býflugnavaxi.
 

 

 

 

 

Brynhildur Þorgeirsdóttir

Brynhildur Þorgeirsdóttir útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1978 og sótti sér framhaldsmenntun til Hollands og Bandaríkjanna. Hún vakti fljótt athygli fyrir skúlptúra á sýningu í Nýlistasafninu 1983. Kraftmikil vinnubrögð og óvenjuleg samsetning steinsteypu og glers, dularfullar og lífrænar verur og sterk óhlutbundin form. Verk Brynhildar eru auðþekkjanleg fyrir persónulegan stíl, sem einkennist öðru fremur af sterkri efniskennd og tilvísunum í náttúruna.
Brynhildur starfaði í New York 1984-1990 og hefur sýnt verk sín víða um heiminn. Undanfarin ár hafa verkin stækkað út fyrir sýningarsalina og heilu garðarnir orðið til. Um þessar mundir vinnur Brynhildur að nokkrum stórum verkefnum fyrir nýbyggingu Háskólans í Reykjavík.
 
Titill: Tré 2008
Efni: Gler, Elfenbein gips
Stærð: 44 x 16 x 19 sm
Ár: 2008
Verð: 980.000 kr.

 

 

 

 

 

 

 

 

Eggert Pétursson

Eggert Pétursson (f. 1956) hefur vakið athygli fyrir málverk sín af íslenskum plöntum. Hann nam við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og síðan við Jan van Eyck Academie í Maastricht í Hollandi. Hann  myndskreytti bókina Íslensk flóra með litmyndum, sem kom fyrst út 1983. Eggert hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis. Hann hlaut önnur verðlaun Carnegie Art Award 2006.  Yfirlitssýning á verkum Eggerts var á Kjarvalsstöðum haustið 2007.
 
Titill: Án titils
Efni: Olía á striga
Stærð: 50 x 30 cm
Ár: 2008
Verð: 600.000 kr.
 
Um verkið segir Eggert:
Tréð á myndinni er íslenskt birki.
 

 

 

 

 

 

 

Finnbogi Pétursson

Finnbogi Pétursson (f. 1959) er fyrst og fremst kunnur af einstæðum hljóðverkum sínum, þar sem hann vinnur með hljóðbylgjur og áhrif þeirra á líkamann. Hann hefur starfað að myndlist um 20 ára skeið og haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og víða í Evrópu. Finnbogi var fulltrúi Íslands á Feneyja-tvíæringnum árið 2001. Verk hans er að finna í mörgum söfnum og opinberum byggingum, s.s. hjá Orkuveitu Reykjavíkur og við Vatnsfellsstöð.
 
Titill: Himnalúður með einum snúningi
Stærð: 170 sm
Ár: 2008
Verð: 600.000 kr.
 
Um verkið segir Finnbogi:
Himnalúðri skal beint að himni og blásið í af innlifun. Hann skal nota til að hleypa út gleði og ást og hatri og trú og gremju og sorg og hugsun og hugmyndum, hugrekki og sannfæringu og fífldirfsku og einlægni og óskum og draumum og væntingum og hreinu hjarta.
 

Georg Guðni Hauksson

Georg Guðni Hauksson er fæddur í Reykjavík 1961. Hann lærði myndlist við Myndlista- og  handíðaskóla Íslands og Jan Van Eyck Akademie í Maastricht í Hollandi.
Hann hélt sína fyrstu einkasýningu fyrir 1985 og hefur starfað að myndlist síðan og haldið og tekið þátt í fjölda sýninga. Verk Georgs Guðna eru á öllum helstu opinberu söfnum á Íslandi og víða á  Norðurlöndum, einnig á einkasöfnum í Ameríku og Evrópu.

Titill: Málverk 2008
Efni: Olía á striga
Stærð: 90 x 65 sm
Ár: 2008
Verð: 900.000 kr.
 

 

 

 

 

 

 

 

 

Guðrún Einarsdóttir

Guðrún Einarsdóttir (f. 1957) hefur starfað að myndlist í nær 20 ár. Tilraunir og meðferð olíulita eru stór þáttur í myndgerð hennar þar sem gróðurlendi, vatn og jarðmyndun eru inntak verkanna. Guðrún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum hér heima og víðar.  Verk hennar eru í söfnum, opinberum byggingum og einkasöfnum hér á Íslandi, Evrópu, Ameríku og Asíu.
 
Titill: Græna verkið
Efni: Olía
Stærð: 120 x 160 sm
Ár: 2007
Verð: 900.000 kr.
 
Um verkið segir Guðrún:
Verndum íslenskt landslag og víðerni.
 

 

 

 

 

 

 

Jónas Bragi Jónasson

Jónas Bragi Jónasson (f. 1964) stundaði nám í skúlptúr við MHÍ og framhaldsnám í glerlist í Bretlandi og Skotlandi.  Verk hans eru í eigu fjölmargra, jafnt í einkaeigu sem hjá stofnunum, listasöfnum og opinberum byggingum. Að auki hefur Jónas Bragi skapað ýmsa verðlauna- og viðhafnargripi. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis ásamt því að halda nokkrar einkasýningar hérlendis.
 
Titill: Fjórvíður
Efni: Kristalgler og marmari
Stærð: 186 x 42 x 19 sm
Ár: 2008
Verð: 500.000 kr.

Um verkið segir Jónas Bragi:
Fjórvíður er skúlptúr úr glæru kristalgleri sem er steypt, slípað og fægt. Glerið stendur á marmara og er verkið 86 cm hátt, 42 cm breitt og 19 cm á dýpt. Fjórir þríhyrningslaga fletir glersins skapa form sem nefnist tetrahedron. Lögun þessi úr gleri hefur tvo sérstaka eiginleika: Annars vegar að skapa heim speglunar innan í því og hins vegar brýtur það upp ljós í litróf (prism) sem gefur verkinu litaflóru frumlita.
 

 

 

 

 

Steinunn Þórarinsdóttir

Steinunn Þórarinsdóttir (f. 1955) er einn af kunnustu myndhöggvurum þjóðarinnar. Hún hlaut menntun sína á Englandi og Ítalíu og á að baki 28 ára feril. Skúlptúrar hennar eru unnir í ýmis efni, en maðurinn og umhverfi hans er meginviðfangsefnið í flestum þeirra.  Verk Steinunnar, sem eru bæði inni- og útilistaverk, eru í eigu margra einkasafna, listasafna og stofnana hérlendis sem erlendis. Hún hefur haldið sýningar víða, m.a. í Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu, Kanada og Japan. Í Bandaríkjunum er nú farandsýning á verkum Steinunnar sem nefnist „Sjóndeildarhringir“ eða „Horizons“ en sýningin hófst í Katonah Museum of Art í New York í júní 2007.

Titill: Bræðralag
Efni: Pottjárn og kortenstál (Getur verið utan dyra sem innan.)
Stærð: :  44 x 35 x 70 sm
Ár: 2008
Verð: 1.080.000 kr.

Um verkið segir Steinunn:
Þegar hvessir bognar reyrinn, en brotnar ekki...
 

 

 

 

Vignir Jóhannsson

Vignir Jóhannsson (f. 1952) stundaði nám við MHÍ og við Rhode Island School of Design í Bandaríkjunum, og bjó þar í landi um alllangt skeið. Hann á að baki langan og fjölbreytilegan listferil, sem spannar vítt svið; málverk, innsetningarskúlptúra, glerverk ásamt leikmyndum fyrir leikhús og kvikmyndir. Vignir hefur haldið fjölda einkasýninga, hér heima og í Bandaríkjunum, auk þess tekið þátt í fjölmörgum samsýningum víða um heim. Verk eftir hann eru í eigu íslenskra listasafna og erlendra.
 
Titill: Árhringir (7 feit – 7 mögur)
Efni: Plexígler og stál
Stærð: 45 x 65 x 130 sm
Ár: 2008
Verð: 1.000.000 kr.

 

 

 

 

 

 

 

 

Þórdís Alda Sigurðardóttir

Þórdís Alda Sigurðardóttir (f. 1950) stundaði myndlistarnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur, Myndlista-og handíðaskóla Íslands og Akademie der Bildenden Künste í München. Hún hefur haldið 12 einkasýningar og tekið þátt í fjölmörgum samsýningum hér á landi og erlendis. Þórdís vinnur iðulega með ,,hráefni“ sem eiga sér fortíð í öðru samhengi, notar t.d. alls kyns nytjahluti, nýja eða gamla, úr taui jafnt sem járni o.fl. Þannig vinnur hún með andstæður í hugmyndum og efni. Undanfarin ár hefur Þórdís sýnt með hópi norrænna listamanna sem kalla sig Provincialistana og hafa þeir, auk sýninga, staðið fyrir málþingum og bókaútgáfu. Hún er einn af stofnendum listhússins START ART á Laugavegi 12b og sýnir þar reglulega.
 
Titill: Haust 2008   
Efni: Járnsteypa (má vera úti sem inni)
Stærð: 195 x 140 sm
Ár: 2008
Verð: 700.000 kr.

 

 

 

 

 

 

 

BARNAHEILL

Barnaheill eiga aðild að alþjóðasamtökunum Save the Children sem starfa í 120 löndum. Barnaheill vinna að réttindum og velferð barna á Íslandi og erlendis. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er leiðarljós samtakanna í öllu þeirra starfi. Samtökin vinna að breytingum á högum barna með þátttöku barna, í gegnum málsvarahlutverk, fræðslustarf og grasrótarverkefni. Helstu áherslur Barnaheilla hérlendis eru á almenna réttindabaráttu barna og baráttu gegn ofbeldi á börnum. Helstu áherslur Barnaheilla á Íslandi erlendis eru á menntun barna og styðja Barnaheilla menntaverkefni í Kambódíu og Norður-Úganda.

Styrktaraðilar

Sævar Karl
Hilton Nordica Hotel
Gallerí Fold

 

 

 Gallerí Fold

 

Þakkir

Aðalheiður Héðinsdóttir
Elsa Einarsdóttir
Gísli Einarsson
Guðlaug Halldórsdóttir
Harpa Þórsdóttir
Helga Sverrisdóttir
Ragnhildur Skarphéðinsdóttir

 

Samstarfsaðilar

Gallery Turpentine
Studio Stafn



GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400