Gallerí Fold er umboðsaðili fyrir um það bil eitt hundrað íslenska listamenn.
SALA LISTAVERKA OG RÁÐGJÖF
Gallerí Fold tekur listaverk í umboðssölu.
Þeir listamenn sem koma í samstarf við Gallerí Fold geta gengið að góðri ráðgjöf vísri. Starfsfólk gallerísins er með áralanga reynslu af sölu listaverka, reynslu sem það er tilbúið að miðla til listamanna. Þeir sem hafa áhuga á að koma verkum sínum á framfæri í galleríinu geta haft samband við Elínbjörtu Jónsdóttur í síma 551-0400,
.
INNRÖMMUN
Gallerí Fold rekur eitt fullkomnasta innrömmunarverkstæði landsins. Við notum einungis úrvals rammaefni og sýrufrí karton og bök. Við gerum listamönnum tilboð í innrömmun hvort sem um smærri eða stærri verkefni er að ræða eða regluleg verkefni. Sendu póst núna á
og fáðu tilboð í rammasmíði, verðið á eftir að koma þér á óvart.
LEIGA Á SÝNINGARSAL
Sýningarsalir Gallerís Foldar er þrír, Baksalurinn er 65,5 fm, veggplássið er 33,5 lengdarmetri og færanlegur veggur 6 lengdarmetrar að auki. Til viðbótar eru tveir nýjir salir einn stór og annar lítill.
Sýningartímabilið nær yfir tvær vikur og þrjár helgar eða eina viku og tvær helgar.
Salurinn er leigður út til listamanna og innifalið í leigunni er:
Prentun boðskorta sem fylgir Listapóstinum.
Útsending um það bil 1600 boðskorta.
Útsending um það bil 1600 boðskorta í tölvupósti.
Veitingar og þjónusta við opnun.
Gerð á einfaldri sýningarskrá sem prentuð er í Galleríi Fold.
Fréttatilkynningar á fjölmiðla.
Leiga á salnum.
Það er ekki nauðsynlegt fyrir listamann að sitja yfir á meðan á sýningu stendur.
Umboðslaun af sölu ganga upp í leigu á salnum.
Þeir sem hafa áhuga á geta snúið sér til Elínbjartar Jónsdóttur í síma 551-0400,
.
GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400