Gallerí Fold tekur listaverk í umboðssölu fyrir listamenn og einstaklinga.
Boðið er upp á tvenns konar þjónustu fyrir einstaklinga. Annars vegar beina umboðssölu en í því fellst að verk er tekið til sölumeðferðar í galleríinu og hins vegar sölu á uppboði.
Bein umboðssala:
Seljandi kemur verki til gallerísins þar sem það er boðið til sölu. Eftir að verk er selt þarf seljandi að greiða söluþóknun og virðisaukaskatt sem leggst á söluþóknunina. Söluþóknun listaverka fer eftir verðskrá Gallerís Foldar hverju sinni.
Ef þú vilt selja verk getur þú sent fyrirspurn til okkar í tölvupósti,
Nauðsynlegar upplýsingar sem verða að fylgja eru:
Nafn og sími sendanda
Höfundur verks
Stærð verks án ramma og kartons
Sala á uppboði:
Seljandi kemur verki til gallerísins þar sem það er síðan boðið hæstbjóðanda á uppboði. Eftir að verk er selt þarf seljandi að greiða söluþóknun sem er tilgreind í uppboðsskilmálum hverju sinni.
GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400