Samsýningin 23 ljósmyndara í Galleríi Fold við Rauðarárstíg.
Yrkisefni þeirra eru náttúruhamfarirnar og eldgosin á Fimmvörðuhálsi og Eyjafjallajökli. Eldgosin hafa boðið góðum ljósmyndurum uppá ótrúleg tækifæri og á sýningunni eru margar þekktar ljósmyndir sem birst hafa í stærstu fjölmiðlum um heim allann auk annarra sem koma nú fyrir sjónir almennings í fyrsta skipti. Trúlega hafa aldrei verið teknar eins frábærar myndir af eldgosum hér á landi.
Sýningin nefnist Úr iðrum jarðar.
Ljósmyndarnir koma úr ýmsum áttum sem nálgast myndefni sitt með ólíkum hætti en sameinast í áhuga sínum á náttúru landins og hinum mannlega þætti sem birtist í baráttu fólks við náttúruröflin.
Þetta er lifandi sýning sem stendur í allt sumar og munu nýjar myndir berast ef breytingar verða á gosinu eða önnur gos eiga sér stað.
The Eyjafjallajökull glacier is one of the
smaller glaciers in Iceland. It is situated nearby a beautiful hiking
area on the south coast where thousands of people camp and enjoy nature
during the summer. Just next to it a another much bigger volcano, Katla,
which is covered by the glacier Mýrdalsjökull (yes, another hard to
pronounce name).
The first fissure erupted between these two
glaciers, Eyjafjallajökull and Mýrdalsjökull. In order to get there you
have to drive in super jeeps or snowmobiles over the glacier
Mýrdalsjökull up to 1450 meters over see lavel. It is a trip that takes
about five hours.
Beginning on 14 April 2010, the eruption
entered a second phase and
created an ash cloud that led to the closure of most of
Europe's airspace
from 15 April until 20 April 2010. Consequently, a very high proportion
of flights within, to, and from Europe were cancelled, creating the
highest level of air
travel disruption since the Second World War.
The volcanic
eruptions are a great photo opportunity and many photographers from
around the world are traveling to Iceland to capture it. Art Gallery
Fold will open an exhibition with photographs from 23 photographers next
Saturday (May 15th).
Gallerí Fold afhenti í dag Neistanum, styrktarfélagi hjartveikra barna, 40.000 krónur en það er söluandvirði verka eftir nýsjálenska listamanninn Shannon Novak.
Verkið er hluti af sýningu sem hófst samtímis um allan heim þar sem verk Shannon voru sýnd í mismunandi galleríinum. Sýning bar heitið Sound Fragments eða hljóðbrot.
Söluágóði listaverkanna rann óskiptur til góðgerðamála í hverju landi og borg fyrir sig.
Fyrsti áfangi sýningarinnar hófst í einu galleríi (Sanderson Contemporary Art) í Auckland í Nýja Sjálandi þann 11. mars.
Annar áfangi sýningarinnar var settur upp í á landsvísu í Nýja Sjálandi og hófst þann 21. mars.
Þriðji og síðasti áfangi sýningarinnar hófst 6. apríl þegar verk Shannon voru sett upp í galleríum víða um heim, m.a. í Belgíu, Nígeríu, Ítalíu, Bretlandi, Bandaríkjunum, Dubai, Ástralíu og Íslandi.
Sound Fragments er alþjóðlegt listaverkefni listamannsins Shannon Novak þar sem hann kannar samhengið á milli lita, hljóðs og tilfinninga - könnun á hljóðbrotum sem springa út á við frá ákveðnum upphafspunkti. Núna er þessi upphafspunktur tónlistamaður, en frá honum streyma hljóðbrot sem búin eru til með tólf tónum eða hálftónum. Í gegnum einstaka litablöndun, geomatrísk form og sterka liti, afhjúpar sýningin hráa og einfalda fegurð hljóðbrotanna.
Tekið er fram að ekki er víst að öll verk séu seld við hamarshögg.
Á rás með Grensás - þrykk eftir Tryggva Ólafsson
Höfundur Jóhann
Gallerí Fold hefur tekið að sér að afhenda grafíklistaverk Tryggva Ólafssonar sem seld voru í landssöfnuninni Á rás fyrir Grensás.
Þeir sem keyptu verk og hafa sent greiðslu til Grensásdeildar geta komið í galleríið við Rauðarárstíg og sótt verkin sín
Gallerí Fold hefur einnig boðið öllum þeim sem kaupa verkið innrömmun með veglegum afslætti.
Þeir sem vilja láta ramma verkið inn geta sent okkur beiðni með tölvupósti á eða hringt í galleríið, sími 551-0400.
Dæmi um innrömmun.
Tilboðsverð kr. 15.000,-
Hvítur kassalaga rammi og hvítt karton.
Ytra mál ramma er 76x97 cm
Safnarinn.is
Höfundur Jóhann
Góð leið til að eignast myndlist
Safnarinn.is er frábær leið til að eignast eigulega
myndlist. Þú greiðir 1000 kr. eða meira mánaðarlega
í safnarasjóðinn og færð þetta í staðinn:
Einu sinni á ári fá allir þátttakendur eigulegt listaverk
sem er að minnsta kosti virði þess sem greitt hefur
verið á tímabilinu.
Einu sinni á ári eru nöfn hluta þátttakenda dregin út
og þeir fá að velja verk úr úrvalspottinum sem hefur
að geyma mun dýrari verk.
Félagar í Safnarinn.is njóta einnig betri kjara hjá
Galleríi Fold:
• 10% afsláttur á listaverkum í almennri sölu
• 15% afsláttur af innrömmun
• 20% afsláttur af verðmatsþjónustu
• Boðskort á sérstakar forsýningar
Fáðu upplýsingar hjá starfsfólki okkar um þessi frábæru kjör, eða skoðaðu málið á safnarinn.is
Þeir sem skrá sig í ágúst 2009 eiga möguleika á að vinna sér inn innrammað grafíkverk eftir Kristján Davíðsson að verðmæti kr. 30.000,-
Eigðu – leigðu
Höfundur Jóhann
Nýr og frábær kostur til að eignast og njóta myndlistar
Nú er hægt að fá fjölda verka á frábærum kjörum í
Galleríi Fold. Þú velur verkið og getur fengið það
leigt í allt að 36 mánuði. Að leigutímabilinu loknu átt
þú verkið. Hvenær sem er á leigutímanum getur þú
skilað verkinu, en þá er leigan ekki endurgreidd.
Fáðu upplýsingar hjá starfsfólki okkar um þessi frábæru
kjör.
Ekki er hægt að fá öll verk með þessum kjörum.
<< Byrjun< Fyrri1Næsta >Endir >>
Niðurstöður 1 - 6 af 6
GALLERI FOLD LISTMUNASALA | RAUÐARÁRSTÍG 14-16 -> S. 551-0400